Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál

1166/2023. Úrskurður frá 8. desember 2023

Hinn 8. desember 2023 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1166/2023 í máli ÚNU 23110008.

Kæra, málsatvik og málsmeðferð

Hinn 7. nóvember 2023 barst úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæra frá Vinnuverndarnámskeiðum ehf. þar sem Vinnueftirlitið hefði ekki afgreitt beiðni kæranda um gögn innan 30 virkra daga, sbr. 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Í erindi kæranda til Vinnueftirlitsins, dags. 26. september 2023, var vísað til þess að á námskeiði um áhættumat hefði komið fram af hálfu eins fyrirtækis sem starfaði á sviði löndunar að skíðahjálmar væru betri en klassíski byggingarvinnuhjálmurinn. Óskaði kærandi eftir svari Vinnueftirlitsins við því hvort eftirlitið viðurkenndi hjálminn Gecko MK11 Open Face á sama hátt og byggingarvinnuhjálminn þegar kæmi að löndun.

Kæran var kynnt Vinnueftirlitinu með erindi, dags. 10. nóvember 2023 og stofnuninni gefinn kostur á að bregðast við henni. Jafnframt var þess óskað að Vinnueftirlitið léti úrskurðarnefnd um upp­lýs­inga­mál í té afrit af þeim gögnum sem kæran lýtur að.

Umsögn Vinnueftirlitsins barst úrskurðarnefndinni hinn 22. nóvember 2023. Í henni kemur fram að það sé mat Vinnueftirlitsins að beiðni kæranda rúmist ekki innan gildissviðs upplýsingalaga þar sem ekki sé óskað aðgangs að fyrirliggjandi gögnum heldur eftir afstöðu Vinnueftirlitsins til nánar til­greindra þátta.

Umsögn Vinnueftirlitsins var kynnt kæranda með bréfi, dags. 23. nóvember 2023, og honum veittur kostur á að koma á fram­færi frekari athugasemdum. Í athugasemdum kæranda, dags. 24. nóvember 2023, furðar hann sig á því að stofnunin kjósi að svara erindi sínu ekki efnislega. Kærandi haldi úti öryggis­námskeiðum fyrir nokkur af stærstu útgerðarfélögum landsins og þau hafi óskað eftir afstöðu Vinnu­eftirlitsins til þess hvers konar hjálma megi nota við löndun. Vinnueftirlitið eigi að svara mál­efna­lega spurningum um öryggismál sem brenni á fyrirtækjum landsins.

Með erindi, dags. 30. nóvember 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir staðfestingu Vinnueftirlitsins á því að ekki lægju fyrir hjá stofnuninni gögn sem innihéldu upplýsingar um það hvort stofnunin viður­kenndi hjálminn Gecko MK11 Open Face á sama hátt og byggingarvinnuhjálminn þegar kæmi að löndun. Í svari Vinnueftirlitsins, dags. 4. desember 2023, kom fram að gögn sem innihéldu þær upp­lýsingar fyndust ekki í málaskrá stofnunarinnar.

Niðurstaða

Í umsögn Vinnueftirlitsins til úrskurðarnefndar um upplýsingamál hefur stofnunin vísað til þess að beiðni kæranda beinist ekki að fyrirliggjandi gögnum heldur sé óskað eftir afstöðu Vinnueftirlitsins til nánar tilgreindra þátta.

Samkvæmt meginreglu 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga veita lögin rétt til aðgangs að fyrirliggjandi gögn­um. Af þessari meginreglu leiðir að þegar aðilum sem falla undir upplýsingalög berst beiðni um upp­lýs­ingar þá ber þeim á grundvelli laganna skylda til að kanna hvort fyrir liggi í vörslum þeirra gögn með þeim upplýsingum sem óskað er eftir, sbr. 15. gr. laganna, og í kjölfarið taka rökstudda ákvörðun um hvort veita beri kæranda aðgang að gögnunum á grund­velli laganna í heild eða að hluta.

Af upplýsingalögum verður ekki leidd sambærileg skylda aðila sem heyra undir gildissvið laganna til að svara almenn­­um fyrir­spurn­um sem hafa ekki tengsl við gögn í vörslum þeirra. Ekki er útilokað að þeim aðil­um kunni að vera skylt að bregðast við slíkum fyrirspurnum þótt ekki liggi fyrir gögn með upplýs­ing­unum sem óskað er eftir, sbr. 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og óskráða leið­beiningar­reglu þess efnis að stjórnvöldum sé skylt að veita þeim sem til þeirra leita nauð­synlega aðstoð og leið­beiningar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þeirra. Hins vegar er það almennt ekki í verka­hring úrskurðarnefndar um upplýsingamál að taka afstöðu til slíkra erinda miðað við hvernig hlutverk nefnd­arinnar er afmark­að í 20. gr. upp­lýs­inga­laga.

Úrskurðarnefndin getur fallist á þá skýringu Vinnueftirlitsins að beiðni kæranda lúti ekki að fyrir­liggjandi gögnum í vörslum stofnunarinnar, sbr. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, heldur sé óskað eftir upp­lýsingum um það hvort stofnunin viðurkenni tiltekinn hjálm sem vísað var til í erindi kæranda til notkunar við löndun. Samkvæmt framangreindu telur úrskurðar­nefnd­in að ekki sé unnt að líta svo á að beiðni kæranda varði gögn í skilningi 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga. Því verður kær­unni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Úrskurðarorð

Kæru Vinnuverndarnámskeiða ehf., dags. 7. nóvember 2023, er vísað frá úrskurðarnefnd um upp­lýs­inga­mál.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum